14.07.2008 18:29:34 / dropzone
Jæja það er nú ekki oft sem ég blogga en ég ættla mér að breyta því. Um
daginn fór ég í tveggja vikna ferð til Italyu en eins og kanski sum
ykkar vita þá hef ég mikin áhuga á að ferðast en geri samt allt of
lítið í því. Það var bara ég og Þórdís sem fórum í þessa ferð saman og
var byrjað á að lenda í Milano en þar var ekki stoppað lengi því við
fórum beint á lestarsöðinna og tókum lest til Romar. Í Rome var allt
skoðað sem er meira en nauðsýnlegt að skoða eins og
Colosseum, Forum, Pantheon, Trevi
gosbrunnin ofl. Ath. ef þið eruð að fara til Rómar þá verðið þið að
taka allveg heilan dag í Vadicaninu því það er ótrúlega stórt og tekur
marga klukkutíma að skoða all sem er þar inni.
Frá Róme var síðan farið til Florence og sáum
Pontevecchio, Dómkirkjuna, Palazzo Vecchio og málverk eins og birth of
Venus og fleirri eftir boticelli og félaga. Á þessum tíma kíktum við í
einn dag til Piza og sáum skakka turninn.
Frá Florence var farið til Genoa þar sem við tókum
því rólega fórum á strönd sem er þar rétt hjá og í sædýrasafn.
Að lokum fórum við aftur til Milano og sáum meðal
annars Dómkirkju þeirra sem er fræg fyiri að vera stærsta kirkja Itala,
næst stærsta gotneska kirkja í heiminum og fjölda turna sem hún ber.
Flugum við síðan heim aftur frá Milano og komum heim aðfaranótt áttunda
júlí.
Myndir eru væntanlegar
.
»
21.10.2007 14:12:02 / dropzone
Jæja ekki margt gerst í þessari fríviku fyrir utan snarklikkað partý hjá honum Gunna. Það vantaði ekki áfengið í þetta partý skal ég þér segja og hefur úrvalið aldrey verið betra. Vanalega er ég þessi típa sem verð ekki þunnur og flest allir hata hversu hress ég get verið deginum eftir. Get ég þá kætt þá með að segja að laugadagurinn fór í lítið vegna þvínku. Þá spyr maður sig var þetta þess virði? Svar HELL YEEEAAAA...
»
14.10.2007 22:23:34 / dropzone
Ég vona að þið haldið því ekki fram að ég sé strax búinn að gefast upp á að blogga, en þannig er mál með veksti að ég vinn tólf tíma á dag í heila viku og er síðan í fríi í heila viku eins og flestir sem eru að lesa þetta ættu að vita. Mér finnst þessir vinnutímar henta mér vel en á meðan vinnuviku stendur mun ég örugglega ekki blogga mikið því þá er vanalega ekki mikið að gerast hjá mér sem ég færi að blogga um. Vinnuviku minni líkur núna á þriðjudagskveldi og þá fer maður að gera eitthvað afsér.
»
08.10.2007 23:10:22 / dropzone
Jebb kallinn er farin að blogga. Er reyndar ekki viss um hvort ég verði duglegur við það en það kemur bara í ljós. Þeir sem ekki vita þá er ég einnig með myspace en slóðin er http://www.myspace.com/oli_dropzone.
»